Í kvöldfréttum RÚV þann 19. september kom fram að Iðan og Rafmennt vinna nú að stofnun öryggisskóla, sem verður opnaður á nýju ári. 

Skólinn mun leggja áherslu á öryggismál í mannvirkjagerð og tengdum greinum. Markmiðið er að efla menntun og þjálfun fagfólks í öryggismálum til að tryggja aukið öryggi á vinnustöðum.

Þetta er stórt skref í átt að því að bæta vinnuumhverfi og stuðla að öflugri öryggismenningu innan iðnaðarins. Við hlökkum til að kynna verkefnið frekar á næstu misserum og viljum hvetja alla sem hafa áhuga á að fylgjast með þróun þess í gegnum miðla okkar.

Fréttina má horfa á hér.