Nýnemar FS ánægðir með gjöfina ásamt Hafdísi Reinaldsdóttur skrifstofustjóra Rafmennt l.t.v. og Guðm…
Nýnemar FS ánægðir með gjöfina ásamt Hafdísi Reinaldsdóttur skrifstofustjóra Rafmennt l.t.v. og Guðmundi Grétari Karlssyni aðstoðarskólameistara FS l.t.h.

Elísa Einarsdóttir verkefnastjóri kynningarmála og Hafdís Reinaldsdóttir skrifstofustjóri hjá Rafmennt afhentu nýnemum í rafiðngreinum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja glænýjar og vandaðar vinnubuxur.

Buxurnar eru frá Helly Hansen sem er viðurkennt merki í vinnufatnaði.

Rafmennt hefur síðustu ár stutt við nemendur sem hefja nám í rafiðngreinum um allt land með því að gefa þeim nýnemagjöf. Nemendur hafa verið mjög ánægðir með gjöfina og hafa vinnubuxurnar reynst þeim einstaklega vel í námi og starfi.