Guðmundur S. Jónsson, til vinstri ásamt nemendum og Guðmundi Þór kennara.
Guðmundur S. Jónsson, til vinstri ásamt nemendum og Guðmundi Þór kennara.

Guðmundur Jónsson, verkefnastjóri sterkstraums hjá Rafmennt afhenti nýnemum í rafiðngreinum við Fjölbrautaskóla Vesturlands glænýjar og vandaðar vinnubuxur.

Buxurnar eru frá Helly Hansen sem er viðurkennt merki í vinnufatnaði.

Rafmennt hefur síðustu ár stutt við nemendur sem hefja nám í rafiðngreinum um allt land með því að gefa þeim nýnemagjöf. Nemendur hafa verið mjög ánægðir með gjöfina og hafa vinnubuxurnar reynst þeim einstaklega vel í námi og starfi.