Fimmtudaginn 1. desember kl: 12:00 - 13:00 verður haldin fræðslu- og kynningarfundur í húsnæði RAFMENNTAR á Stórhöfða 27 (gengið inn Grafarvogsmeginn) og í beinu streymi á Teams á sama tíma.
Óskar Frank Guðmundsson kemur með erindi um hlutverk Húsnæðis og mannvirkjastofnunar varðandi rafmagnsöryggi, hvernig eftirliti er háttað í þeirra verkefnum, hver útkoman var og hvernig niðurstöður eru notaðar. Einnig verður farið yfir réttindi rafvirkja- nema/sveina/meistara um vinnu í rafiðnaði samkvæmt lögum sem gilda um þau mál og hvernig þetta tengist löggildingu rafverktaka.
RAFMENNT býður upp á samlokur og gos
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050