Áfangaheiti: ÖRYG16FALLFÉL1

Farið er í hvernig vinna skal í rafmagns- og fjarskiptamöstum. Hvað þarf að hafa í huga við tryggja sig, gera áhættumat og tryggja vinnusvæði. Áhersla er lögð á félagabjörgun. Kennsla er bæði bókleg og verkleg.

 

Kennari styðst við gildandi evrópustaðla, sem taka á fallvarnar- og björgunarbúnaði, vinnu í kringum háspennulínur, vinnu við möstur, raf- og segulsvið í möstrum og aðra öryggisþætti fyrir vinnu í hæð.

 

Nemendur ættu að hafa með sér allan þann hlífðar- og varnarbúnað sem þeir nota við mastursvinnu, er þá átt við fallvarnarbelti, hjálma, öryggisskó, fall- og líflínur, rail-festur, akkeri og annan búnað. Á staðnum verður líka annar hlífðar- og varnarbúnaður.

Námskeiðið fer fram á ensku.


Fullt verð: 130.000 kr

Endurmenntun: 45.000 kr


Flokkar: Almenn námskeið