Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
 
Áfangaheiti: UPTÆ18Power BI
 
Á þessu námskeiði verður farið í alla kerfishluta Power BI og möguleikar lausnarinnar kannaðir til hlítar. Power BI frá Microsoft hentar vel til að búa til gagnvirkar skýrslur og mælaborð og dreifa til notenda en Power BI bíður líka upp á gagnamótun og gerð greiningarteninga.

Power BI – Framsetning og dreifing
23. jan / 20. mars. 2025 kl. 09:00 - 15:00

Farið verður í hönnun og gerð gagnvirkra skýrsla og mælaborða í Power BI Desktop en farið verður líka yfir þá möguleika sem skýjalausnin býður uppá til að birta og greina gögn og dreifa skýrslum. Kannaðar verða margvíslegar aðferðir til að setja fram gögn á myndrænan hátt en námskeiðið nýtist öllum þeim sem vilja setja fram gögn með myndrænum hætti með nútímalegum aðferðum.

Power BI – Greiningarmódel og DAX forritun
30. jan / 27. mars. 2025 kl. 09:00 - 15:00

Síðan verður fjallað um teningagerð og einfalda DAX forritun í Power BI. Farið verður yfir innlestur á ýmiskonar gögnum, hvernig maður tengir saman margskonar gagnatöflur. Síðan snúum við okkur að DAX forritun og lærum að forrita okkar eigin mælieiningar og greiningarvíddir. Við lærum á töfluföll, dagsetningaföll, strengjaföll, CALCULATE() og ýmislegt fleira.

Power BI – Gagnamótun
6. feb / 3. apríl. 2025 kl. 09:00 - 15:00

Power Query (Transform) er bæði til sem ókeypis viðbót í Excel (Get and transform) og hluti af Power BI desktop (Transform). Power Query frá Microsoft er tól sem umbreytir hráum gögnum í greinanleg gögn. Power Query er auðvelt í notkun, hraðvirkt og getur tengst næstum hvaða gagnalind sem er. Power Query sér um hreinsun, samþættingu og samtengingu gagna. Með Power Query gefst kostur á að vista og endurnýta fyrirspurnir og verkferla sem oft eru keyrðir.

Meðal þess sem er kennt:
  • Notkun og virkni skýrslna og þá sérstaklega gagnvirkni gagnastýringa og tengingar á milli skýrslna.
  • Skýrsluhönnun og gagnabirting - hvað virkar og hvað ber að varast?
  • Að tengjast einföldum gagnalindum með Power BI Desktop og birta í skýrslum.
  • Útfærsla á aðgangsstýringum og notkun Power BI Service til að dreifa greiningarskýrslum.
  • Staðlaðar gagnasýnir (e. visuals) sem fylgja með Power BI og aðfengnar gagnasýnir sem boðið er upp á til að útvíkka möguleika forritsins (e. custom visuals).
  • Birting landfræðigagna og þá möguleika sem Power BI bíður upp á, bæði með stöðluðum gagnasýnum og aðfengnum gagnasýnum.
  • Greining gagna á mannamáli (e. natural language queries) og hvernig best er að haga fyrirspurnum til að fá réttar niðurstöður.
  • Leiðir til að auðvelda aðgengi að upplýsingum með „fyrirspurnum á mannamáli“.
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur aflað sér þekkingar á ýmsum útbreiddum gagnalindum og algengum aðferðum við móta gögn og gera þau greiningarhæf.

Námskeiðið nýtist öllum þeim sem vilja setja fram gögn með myndrænum hætti og nútímalegum aðferðum. Námskeiðið byggir á virkri þátttöku nemenda og nýtist öllum þeim sem vinna með tölugögn.

Skipulagið

Mikilvægt að allir mæti með nýjustu útgáfu af Power BI desktop uppsett sem má nálgast hér án endurgjalds.

Námskeiðið er kennt í staðarnámi í Opna háskólanum frá kl. 09:00 - 15:00 eftirfarandi daga:

Námskeið 1:
  • Fimmtudaginn 23. janúar
  • Fimmtudaginn 30. janúar
  • Fimmtudaginn 6. febrúar

 

Námskeið 2:
  • Fimmtudaginn 20. mars
  • Fimmtudaginn 27. mars
  • Fimmtudaginn 3. apríl

Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.

Hagnýtar upplýsingar.

Þátttakendur þurfa að vinna á sinni eigin PC tölvu. Tölvan þarf að vera með Windows stýrikerfi og nýjustu útgáfu Power BI Desktop uppsetta.

Nafn kennara: Grímur Sæmundsson

Grímur hefur starfað sem ráðgjafi í viðskiptagreind undanfarin 20 ár, m.a. hjá Applicon, Umoe Consulting og Deloitte Consulting. Grímur hefur langa reynslu af kennslu og þjálfun, bæði í tengslum við innleiðingar á viðskiptagreind og sjálfstæð námskeið. Grímur er með BA í heimspeki, kerfisfræðingur frá HR og MBA.

 


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 99.000 kr

RSÍ endurmenntun: 35.000 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni


Flokkar: Endurmenntun Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Power BI frá A til Ö 23. jan 2025 - 06. feb 2025 Rafmennt ehf. 9:00 - 15:00 Opni Háskólinn hjá HR 35.000 kr. Skráning
Power BI frá A til Ö 20. mar 2025 - 03. apr 2025 Rafmennt ehf. 9:00 - 15:00 Opni Háskólinn hjá HR 35.000 kr. Skráning