Námskeið í samstarfi við Endurmennntun Háskóla Íslands

Áfangaheiti: UPTÆ07CGPT I

Námskeiðið er í samstarfi við Endurmenntun Háskólans, þetta námskeið hefur verið mjög vinsælt og hefur alltaf fyllst. Nú gefur Rafmennt sínum skjólstæðingum tækifæri á að sækja námskeiðið á góðu verði. Fullt verð er 76.900kr, endurmenntunarverð Rafmenntar er 26.950kr. Hægt er að sjá umsagnir nemanda neðst á síðu.
 
 
Velkomin til tímabils þar sem gervigreind er ekki aðeins framtíðarlegt hugtak, heldur raunverulegt tól - innan seilingar. Námskeiðið er yfirgripsmikið og vandlega hannað af verkfræðingum sem búa að mikilli reynslu í að skapa verðmæti með gervigreind, Sverri Heiðari Davíðssyni og Corey Harpe. Markmið námskeiðsins er að byggja sjálfstraust og sjálfstæði þátttakenda í notkun gervigreindar og opna þar með á ný tækifæri og möguleika í starfi og einkalífi.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kynna fjölbreyttar leiðir til að nýta ChatGPT. Ekki er kafað djúpt í einstök svið eins og forritun, markaðssetningu eða rannsóknir heldur er lögð áhersla á að gefa þátttakendum góða undirstöðuþekkingu og yfirsýn á möguleikum með ChatGPT í fjölbreyttum verkefnum. Markmiðið er að þátttakendur hafi nægan skilning til að geta yfirfært lærdóminn á eigin verkefni.

Hvorum degi er skipt í tvo hluta og hver hluti samanstendur af fyrirlestri og æfingum. Nægur tími verður fyrir spurningar, umræður, aðstoð og pásur samhliða fyrirlestrum og æfingum.

Athugið að uppfærslur eru reglulegar á ChatGPT líkaninu og hinum ýmsum tólum innan þjónustunnar. Námsefnið er alltaf uppfært eins fljótlega og hægt er en námskeiðslýsingin er ekki alltaf uppfærð samhliða breytingum.

Dagur 1 - Grunnur og könnun möguleika:
Á fyrsta degi námskeiðsins er lögð áhersla á skilning á spunagreind og ChatGPT. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur skilji eða hafi notað ChatGPT eða önnur gervigreindartól. Byrjað er frá grunni með almennri kynningu á ChatGPT, notendaviðmótinu, stillingum og helstu hugtök útskýrð. Eftir það er farið yfir hvernig ChatGPT getur búið til og verið notað með myndrænu efni. Farið er yfir mörg sýnidæmi og þátttakendur gera einfaldar en fjölbreyttar æfingar undir leiðsögn kennara til að sjá hveru yfirgripsmikil þekking og færni ChatGPT er á ýmsum sviðum og til að læra áhrifaríkar leiðir til að nota tæknina.

Dagur 2 - Farið dýpra í hagnýt verkefni:
Annar dagurinn snýst um að læra á hin ýmsu tól sem ChatGPT býður upp á. Byrjað er á því að skoða notkun á ChatGPT í öðrum viðmótum en á vefnum. Farið er yfir takmarkanir og ókosti tólsins og útskýrt hvernig er gagnlegt að hugsa um tæknina þannig að þátttakendur skilji hvernig ChatGPT er frábrugðið annarri tækni, t.d: leitarvélum, reiknivélum og þýðingartólum. Þá er farið yfir flóknari tól fyrir greiningu og myndræna framsetningu á gögnum. Farið er yfir hvernig ChatGPT getur tengst öðrum þjónustum og hvernig hægt er að gera GPTs fyrir sérhæfð verkefni. Einnig er farið yfir hvernig hægt er að nota ChatGPT í stærri og flóknari verkefnum. Þátttakendur fá að sjá fjölbreytt sýnidæmi og vinna svo í verkefnum sem krefjast notkunar á öllum þessum tólum.

Þátttakendur eru hvattir til að nota ChatGPT í starfi sínu og utan vinnu á milli kennslutíma. Þannig geta þeir betur nýtt seinni daginn þegar kemur að umræðum, bæði með því að deila reynslu og með því að biðja um ráð.

Á námskeiðinu er fjallað um
  • Kynningu á ChatGPT og könnun möguleika: Þátttakendur læra á notendaviðmót ChatGPT og auka skilning á því sem hægt er að gera með þjónustunni.
  • Fjölbreytt notagildi: Sýnt verður hvernig nýta má ChatGPT á einfaldan máta og einnig hvernig hægt er að nota flóknari tól í fjölbreyttum verkefnum.
  • Umræðu um ábyrga notkun: Snert verður á persónuverndar- og öryggissjónarmiðum gagna í samhengi gervigreindar.
 
Ávinningur þinn
      - Þú lærir að nota gervigreindarlausnir til að fást við raunveruleg verkefni á áhrifaríkan hátt.
      - Þú tileinkar þér traustan skilning á ChatGPT:
  • Byggir upp trausta grunnþekkingu á ChatGPT.
  • Lærir að nota öll helstu tólin sem þjónustan býður upp á
  • Verkleg þjálfun með ýmsum hagnýtum verkefnum
      -  Þú býrð þig undir stafrænu byltinguna:
  • Færð innsýn í gervigreindarbyltinguna
  • Eykur skilning á því hvernig ChatGPT breytir heimi viðskipta og tækni.
Fyrir hverja
Þetta námskeið er ætlað fjölbreyttum markhópi og er fyrir öll þau sem hafa áhuga á gervigreind og vilja læra að nota ChatGPT í starfi. Námskeiðið er fyrir byrjendur og þau sem vilja læra á þau fjölbreyttu tól sem fylgja ChatGPT, frekar en fyrir reynda notendur sem stefna að því að dýpka sérþekkingu sína í tilteknum tæknilegum þáttum.

Markhópar sem gætu notið góðs af námskeiðinu:
  • Fagfólk í hvaða geira sem er: Hvort sem þú ert í rafiðnaði, fjármálum, heilbrigðisþjónustu, menntun eða einhverju öðru, getur færni á ChatGPT gjörbreytt því hvernig þú nálgast áskoranir og leysir vandamál í þínu fagi.
  • Stjórnendur og leiðtogar: Bættu stefnumótun þína með aðstoð ChatGPT, bættu skilvirkni teymisins vertu leiðandi í nýsköpun.
  • Námsmenn og áhugasamir: Náðu forskoti í námi þínu, flýttu fyrir lærdómi og notaðu ChatGPT sem einkakennara í nánast hvaða fagi sem er.
  • Skapandi fólk og hönnuðir: Kannaðu hvernig ChatGPT getur aðstoðað við sköpunarferlið þitt og opnað nýjar leiðir til nýsköpunar.
  • Kennarar og þjálfarar: Fléttaðu ChatGPT inn í kennsluaðferðir þínar með gerð og yfirferð verkefna eða við gerð áætlana til að bæta upplifun nemenda eða iðkenda.
 
Við reiknum með því að þátttakendur séu sjálfbjarga þegar kemur að tölvuvandamálum sem tengjast ekki notkun á ChatGPT. Mikilvægt er að þátttakendur séu búnir að ganga frá skráningu og kaupum á áskrift að ChatGPT fyrir námskeiðið því ekki gefst nægur tími á meðan námskeiðinu stendur til að aðstoða þátttakendur við slíkt á námskeiðstímanum.

Nánar um kennara
Sverrir Heiðar Davíðsson starfar sem leiðtogi í hagnýtingu gervigreindar hjá Orkuveitunni og hefur yfir 5 ára reynslu á sviði gervigreindar. Sverrir er með M.Sc. í gervigreind og gagnavísindum frá DTU og B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá HÍ.
Corey Scott Harpe starfar sem leiðtogi líkana og gagnavísinda hjá Veitum og hefur yfir 5 ára reynslu í orku- og veituiðnaði. Corey er með M.Sc. gráðu í orkuverkfræði frá HR og B.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá UF.
Sverrir og Corey unnu saman í teymi snjallvæðingar og stafrænnar þróunar hjá Veitum í þrjú ár og leiddu þar þróun gervigreindarvegferðarinnar hjá Veitum.

Aðrar upplýsingar
Nauðsynlegt er að vera með fartölvu. ChatGPT er þjónusta sem notuð er í gegnum netið á vefsíðu og krefst ekki öflugrar tölvu til að nota.
Sæmileg tölvukunnátta er nauðsynleg, þátttakendur verða að vera búnir að fara sjálfir á síðuna, búa sér til aðgang og greiða fyrir einn mánuð af ChatGPT Plus áskrift fyrir áður en námskeiðið byrjar (mánaðaráskrift kostar tæplega 3500 ISK).
Vinsamlegast athugið að til eru ýmsar eftirlíkingar eða svipaðar þjónustur sem koma upp þegar leitað er að ChatGPT og þátttakendur ættu að gæta þess að skrá sig í rétta þjónustu. Fyrir leiðbeiningar um hvernig á að skrá sig í ChatGPT smelltu hér.
Námskeiðið er kennt á íslensku en krefst einnig grunnkunnáttu í ensku þar sem æfingar, flest dæmi og hluti námsefnis er flutt á ensku. Þó hægt sé að nota íslensku við ChatGPT er upplifunin best á ensku.

Nánar um námskeið á vef Endurmenntunar Háskólans
           
Umsagnir nemanda
"Mjög reynslumiklir og fróðir kennarar sem eiga auðvelt með að miðla þekkingu til annarra á skemmtilega og áhugaverðan hátt. Mæli 100% með þessu námskeiði."
"Uppfyllti allar mínar væntingar. Kennararnir voru frábærir, fróðir, flott tímastjórnun og flæði og gáfu sér góðan tíma í umræður"
"Líklega eitt af 10 bestu námskeiðum sem ég hef set, og ég hef setið þau mörg"
"Mjög spennandi málefni og miklu meiri möguleikar og notagildi en ég bjóst við. Kennararnir fóru mjög vel í gegnum námsefnið af mikilli þekkingu og áhuga."
"Einstaklega fagmannlega að þessu staðið hjá Sverri og Corey, mjög áhugasamir um efnið og skýrir íframsetningu, svöruðu öllum spurningum vel."
"Frábært námskeið og magnað að sjá möguleikana sem gervigreindin býður upp á. Verkefnin og æfingarnar sem farið var í gegnum gefa þátttakendum endalausar hugmyndir. Boðskapur námskeiðsins er í raun að allt er mögulegt og eina hindrunin býr í okkur sjálfum. Takk fyrir mig."

 


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 76.900 kr

RSÍ endurmenntun: 26.950 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni


Flokkar: Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Hagnýtar gervigreindarlausnir 12. sep 2024 - 13. sep 2024 Rafmennt ehf. 12:45-16:15 og 8:45-12:15 Dunhaga 7 26.950 kr. Fullt
Hagnýtar gervigreindarlausnir 25. sep 2024 - 26. sep 2024 Rafmennt ehf. 12:45 - 16:15 Dunhaga 7 26.950 kr. Fullt
Hagnýtar gervigreindarlausnir 09. okt 2024 - 10. okt 2024 12:45 - 16:45 Dunhaga 7 26.950 kr. Skráning
Hagnýtar gervigreindarlausnir 30. okt 2024 - 01. nóv 2024 12:45-16:15 og 8:45-12:15 Dunhaga 7 26.950 kr. Skráning